Fullorðinsfræðsla
Fullorðinfræðsla Hafnarfjarðarkirkju býður upp á fjölbreytt námskeið við allra hæfi um trú, fjölskyldumál og samfélagið frá fyrstu vikunni í september og að páskum á hverjum vetri.
HJÓNANÁMSKEIÐ
Hjónanámskeiðin hafa notið mikilla vinsælda frá upphafi og hafa mörg þúsund manns tekið þátt í þeim.
Vinsældir námskeiðanna má kannski einna helst rekja til þess að á námskeiðunum gefst þátttakendum tækifæri til þess að skoða sitt eigið samband út frá fyrirlestrum og verkefnum sem hvert par heimfærir upp á sinn eigin veruleika. Þar er líka lögð rík áhersla á sjálfsskoðun og sjálfsrýni. En umfram allt er bent á fjölbreyttar leiðir sem hægt er að fara til að bæta og styrkja hjónabandið og sambúðina í aðstæðum lífsins. Þannig hentar námskeiðið öllum aldurshópum og er ekki síst gagnlegt fyrir þau pör sem vilja styrkja það sem gott er fyrir. Hjón þurfa þess vegna ekki endilega að vera í einhverjum vanda til að geta nýtt sér aðferðafræði námskeiðsins. Og þó námskeiðið heiti hjónanámskeið er það opið öllum pörum, hvort sem þau eru í hjónabandi eða sambúð.