Háteigskirkja

 

Kirkjukórsæfing í kvöld kl. 20:00

Kirkjukórinn æfir sem fyrr á miðvikudagskvöldum kl 20:00. Mikill hugur er í kórfólki og stjórnanda og undirbúningur komin á fullt fyrir dymbilviku, páska og fyrirhugaða tónleika um mánaðarmótin apríl/maí.

Kirkjukórinn heldur áfram sínum vikulega æfingum. Kórinn er nú að æfa verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Thomas Tallis og Franz Liszt meðal annars.

Kórinn mun syngja á föstuvöku í dymbilviku svo og á kórtónleikum um mánaðamótin apríl/maí. Hægt væri að bæta við karlröddum í kórinn en þar sem æfingar hafa þegar staðið yfir í mánuð væri aðeins hægt fyrir reynda kórsöngvara að byrja núna. Öðrum er velkomið að sækja um inngöngu í kórinn í upphafi vor- eða haust starfs, sem sagt í janúar eða september.

Douglas Brotchie, 4/2 2004 kl. 10.03

     

    Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS