Háteigskirkja

Starfsfólk og sóknarnefnd fundaði um stefnumótun

Kirkjuþing Þjóðkirkjunnar samþykkti nýverið stefnumótun Þjóðkirkjunnar fyrir árin 2004 - 2010 í framhaldi af viðamikilli undirbúningsvinnu sem Háteigskirkja, ásamt fjölmörgum öðrum kirkjum, tók þátt í.

Hópurinn, tilbúinn til heimferðar að loknum ánægjulegum tíma í Skálholti
Sóknarnefnd og starfsfólk Háteigskirkju

Um helgina tók starfsfólk og sóknarnefnd Háteigskirkju svo næsta skref með fundi í Skálholti þar sem að Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari leiddi m.a. umræður um fyrstu skrefin í framkvæmdaáætlun stefnumótunarinnar.

Næsti fundur starfsfólks, presta og sóknarnefndar til frekari umræðu um þessi mál hefur þegar verið boðaður og verður hann haldinn í safnaðarheimili Háteigskirkju, þriðjudaginn 10. febrúar 2004 kl. 17:15.

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 8/2 2004 kl. 23.59

    Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS