Krílasálmar

Nýtt námskeið Krílasálma hefst mánudaginn 8. febrúar n.k.
Á námskeiðinu er leitast við að kenna foreldrum hvernig nota má söng og tónlist til aukinna tengsla og örvunar við börnin þeirra en rannsóknir hafa sýnt að tónlist hefur góð áhrif á tilfinninga– og hreyfiþroska barna. Í kennslunni er einkum notast við sálma og tónlist kirkjunnar en einnig þekktar vísur, hrynleiki og þulur.
Við syngjum fyrir börnin, vöggum þeim og dönsum og á þann hátt fá þau upplifun af tónlistinni. Það krefst ekki sérkunnáttu að syngja fyrir börnin okkar. Fyrir þitt barn er þín rödd það alfallegasta í öllum heiminum, alveg sama hvernig hún hljómar.
Námskeiðið fer fram á mánudagsmorgnum 8.febrúar til og með 15.mars auk þátttöku í messu þann 14.mars klukkan 11:00. Hver stund hefst klukkan 10:10 og stendur í um 50 mínútur. Kaffi og léttar veitingar að kennslu lokinni.
Leiðbeinendur eru þær Berglind Björgúlfsdóttir, söngkona og kórstjóri og Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir, leikskólakennari og æskulýðsfulltrúi.
Námskeiðisgjald er krónur 3.000 fyrir sex skipti. Nánari upplýsingar og skráning er hjá kirkjuverði í síma 511 5400. Einnig má senda tölvupóst á hateigskirkja@hateigskirkja.is
Björgvin Þórðarson, 8/2 2010 kl. 10.40
