Rafrænt einelti
Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar, í samstarfi við Háteigskirkju, býður æskulýðsleiðtogum kirkjunnar og öðrum sem starfa í tengslum við börn og unglinga upp á fræðsluerindi um rafrænt einelti.
Í erindinu verður fjallað um tegundir, boðleiðir og birtingarform rafræns eineltis. Rafrænt einelti hefur neikvæð áhrif á líf margra og í alvarlegustu tilfellunum hefur það leitt til sjálfsvígs þolenda þess.
Fyrirlesari er Kristrún Birgisdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur og meistaranemi í náms- og starfsráðgjöf.
Fyrirlesturinn verður haldinn í safnaðarsal Háteigskirkju þriðjudaginn 2.mars klukkan 17:00 og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Boðið verður upp á kaffi og létt meðlæti.
Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda póst á hateigskirkja@hateigskirkja.is eða með því að hafa samband við Jónu Lovísu í síma 661 8485.
Björgvin Þórðarson, 26/2 2010 kl. 9.59