“They shall all be one”
Háteigskirkja stendur fyrir ungmennaskiptum í samstarfi við Evrópu Unga Fólksins undir yfirskriftinni, „They shall all be one“ eða „Allir eiga þeir að vera eitt“ sem er vísun í texta Biblíunnar. Ungmennaskiptin eru fyrir unglinga ca. 15 ára, frá Íslandi, Ítalíu, Litháen og Tyrklandi og þau fara fram á þessu ári, 2010. Þátttakendur eru lútherstrúar, kaþólikkar, frá rétttrúnaðarkirkjunni og múslimar. Alls taka þátt í verkefninu 50 einstaklingar. 41 unglingur og 9 leiðtogar.
Tilgangur verkefnisins er að leiða saman unglinga frá þessum löndum þar sem trúarbrögð, menning, loftslag, matarmenning, tíska, tónlist og aðstæður eru ólík. Þar sem gildin og umhverfið er ólíkt en þau eiga það öll sameiginlegt að vera manneskjur með sömu þarfir og langanir. Gefa þeim innsýn inn í daglegt líf hvers annars og hvernig það er að vera unglingur í þessum löndum. Allt lönd innan Evrópu en samt ólík.
Fyrsti liðurinn í þessu verkefni fólst í samveru á Íslandi dagana 23.-30.janúar. Krakkarnir hittust og áttu saman stundir þessa viku. Aðal íverustaðurinn var Safnaðarheimili Háteigskirkju þar sem dagskráin fór fram. Auk þess fóru þau einn sólarhring í Sumarbúðir KFUK í Vindáshlíð.
Dagskráin var meðal annars umræða um trúarbrögðin og kirkjudeildirnar, ýmis konar leikir til að hrista hópinn saman, ratleikur um Reykjavík, heimsókn í Háteigsskóla en skólinn tekur þátt í þessu verkefni með okkur og íþróttamiðstöð. Þá heimsóttu þau Grindavík þar sem þau fengu að skoða fiskverkun, orkuverið í Svartsengi og síðan Bláa Lónið. Hver íslenskur þátttakandi bauð hópi krakka heim til sín í kvöldverð þar sem þau eyddu saman kvöldinu. Það var haldið íþróttamót í Vindáshlíð, farið á Þingvöll og gengið niður Almannagjá. Farið að Geysi og Gullfossi til að sýna þeim íslenska náttúru. Dagskráin var fjölbreytt og miðaði að því að gefa góða mynd af daglegu lífi unglinga í Reykjavík og því umhverfi sem við búum í.
Næsti liður verður á Ítalíu í apríl og síðan endað í Tyrklandi.
Það má með sanni segja að þátttakendur hafi náð að kynnast vel og náð vel saman. Það kom vel í ljós þegar að kveðjustund kom. Þar mátti sjá mörg stór tár á kinnum, skipti á upplýsingum um samskiptamöguleika þangað til næst og söknuð í augum.
„Jáá þetta var geðveiikt!!!
Við getum ekki beðið eftir næstu ferð =D!!!
Besta vika lífs míns, og veit að margir mundu taka undir !“
úr bréfi frá einum íslensku þátttakendanna.
„In my mind I’m still in Iceland… The last week, probably was the greatest week in my life. I liked everything: Reykjavik, Islandic nature and ofcourse my new friends. I met a lot of wonderful people, that was the most important thing. I can’t wait when I’ll see them again! So I’m looking forward to our trip to Sicily.“
úr bréfi frá einum erlendu þátttakendanna.
Björgvin Þórðarson, 4/2 2010 kl. 10.11