Háteigskirkja

 

Krílasálmar - nýtt námskeið

Krílasálmar er námskeið fyrir ungabörn 0-12 mánaða þar sem foreldrum er kennt hvernig nota má söng og tónlist til að auka tengsl við börnin og örva þroska þeirra en rannsóknir hafa sýnt að tónist hefur góð áhrif á tilfinninga- og hreyfiþroska barna.  Í kennslunni eru einkum notaðir sálmar og tónlist kirkjunnar en einnig þekktar vísur, hrynleikir og þulur.

Við syngjum fyrir börnin, vöggum þeim og dönsum og á þann hátt fá þau upplifun af tónlistinni.  Það krefst ekki sérkunnáttu að syngja fyrir börnin okkar.  Fyrir þitt barn er þín rödd það alfallegasta í öllum heiminum, alveg sama hvernig hún hljómar.

Námskeiðið fer fram á fimmtudagsmorgnum auk þátttöku í einni messu.  Hver stund stendur í um 50 mínútur.  Kaffi og léttar veitingar að kennslu lokinni.

Leiðbeinendur er Berglind Björgúlfsdóttir, söngkona og kórstjóri.

Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 29.apríl nk.  Námskeiðisgjald er kr. 3.000 fyrir sex skipti.  Nánari upplýsingar og skráning er hjá kirkjuverði í síma 511 5400.  Einnig má senda tölvupóst á hateigskirkja@hateigskirkja.is

Björgvin Þórðarson, 9/4 2010 kl. 14.49

     

    Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS