Messur í sumar
Það er messa hvern sunnudag í Háteigskirkju allt árið um kring. Messan hefst klukkan 11:00. Kór Háteigskirkju syngur við messurnar og boðið er upp á altarissakramenti í hverri messu.
Þá er boðið upp á Taizé messu hvert fimmtudagskvöld. Taizé messur eru einfaldar helgistundir þar sem gott er að koma og eiga samfélag við Guð. Kirkjan opnar klukkan 19:00 og stundin sjálf hefst klukkan 20:00.
Hvern miðvikudag eru bænastundir í Háteigskirkju klukkan 18:00.
Björgvin Þórðarson, 10/6 2010 kl. 12.32