Háteigskirkja

 

Skerping á áherslum kirkjunnar

Það hefur ekki farið fram hjá neinum umræða um kynbundið ofbeldi í þjóðfélaginu okkar og sú umræða sem hefur spunnist af því varðandi einstaka einstaklinga í þjónustu kirkjunnar.

Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson hefur sent starfsfólki kirkjunnar bréf þar sem hann nefnir fimm atriði til að kirkjan geti brugðist betur við kynbundnu ofbeldi.

Þessi atriði eru:

  • Óháð rannsóknarnefnd sem kirkjuþing skipar. Forsætisnefnd þingsins hefur þegar hafið undirbúning þess. Rannsóknarnefndin tekur til starfa strax að loknu kirkjuþingi og skilar skýrslu svo fljótt sem auðið er.Niðurstaða verði birt almenningi.
  • Fræðsluáætlun  um kynbundið ofbeldi og hjálp við þolendur þess verður unnin fyrir starfsfólk kirkjunnar og lögð áhersla á vandaða framkvæmd hennar. Samhliða því verði efnt til umræðu um efnið í söfnuðum kirkjunnar.
  • Gengið verði úr skugga um það með skimun að starfsfólk kirkjunnar hafi ekki brotið af sér í þessum efnum.
  • Úrræði kirkjunnar til þess að taka á kyndbundnu ofbeldi og meintum kynferðisbrotum verða tekin til endurskoðunar í ljósi reynslunnar. Skerpt verður á löggjöf og starfsreglum um úrskurðarnefnd til að efla hana sem tæki til þess að takast á við álitamál sem upp kunna að koma.
  • Efla frekar handleiðslu og faglegan stuðning við presta, djákna og annað starfsfólk kirkjunnar til þess að fást við mál sem tengjast kynbundnu ofbeldi.

Sumt af þessu er þegar í farvegi, annað í undirbúningi í stofnunum kirkjunnar og brýnt að fylgja því eftir.

Háteigskirkja mun að sjálfsögðu taka þátt í þessari áætlun á allan hátt.  Kristnar kirkjur á Íslandi eru einnig að hefja sérstakt átak varðandi þessi mál.

Björgvin Þórðarson, 30/8 2010 kl. 16.07

     

    Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS