Messa og barnaguðsþjónusta
Alla sunnudaga klukkan 11:00 er messa og barnaguðsþjónusta í Háteigskirkju. Fyrst eru allir saman í kirkjunni en eftir ca 10-15 mínútur fara börnin út í safnaðarheimili þar sem þau Páll Ágúst og Anna Bergljót taka vel á móti þeim og hafa fyrir þau dagskrá við hæfi. Stundum koma gestir sem eru brúður til að fræða börnin eða til að segja þeim sögu.
Að messu og barnaguðsþjónustu lokinni er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu.
Það eru allir velkomnir.
Björgvin Þórðarson, 6/9 2010 kl. 13.21