Fjölskyldumessa - sunnudaginn 22. janúar
Á sunnudaginn 22. janúar er fjölskyldumessa í Háteigskirkju. Hún er með öðru sniði en hefbundnar messur því þá fara börnin ekki með foreldrum sínum í sunnudagaskólann í safnaðarheimilinu heldur erum við öll saman, ungir og eldri, í kirkjunni allan tímann. Þessar messur eru 4. sunnudag í hverjum mánuði í umsjón sr. Helgu Soffíu og Páls Ágústs. Judy Thorbergsson leikur á orgel en einnig tökum við upp gítarinn og tökum skemmtilega hreyfisöngva með í bland við annað, heyrum sögu, kíkjum í fjársjóðskistuna auk þess sem kjánaprikið hann Rebbi refur kíkir í heimsókn til okkar.
Það eru allir hjartanlega velkomnir, jafnt ungir sem eldri og allir þess á milli!
Páll Ágúst Ólafsson, 21/1 2012 kl. 10.22