Háteigskirkja

 

Kópasálmar, Krílasálmar og Unglingaklúbburinn

Á morgun, þriðjudaginn 17. janúar hefjast Kópasálmar í kirkjunni kl. 15.30-16.15. Stjórnandi er Berglind Björgúlfsdóttir.

Unglingaklúbburinn fyrir 13-16 ára fer af stað eftir jólafrí um kvöldið kl. 20-22 en Aron og Dagbjört taka vel á móti þeim í kirkjunni. Það eru allir unglingar velkomnir, bæði þeir sem hafa verið áður sem og einnig þeir sem vilja bætast í hópinn.

Krílasálmarnir munu hefjast næsta þriðjudag 24. janúar kl. 10 en ekki á morgun eins og auglýst var. Ennþá eru nokkur laus pláss fyrir áhugasama!

Páll Ágúst Ólafsson, 16/1 2012 kl. 15.38

     

    Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS