Háteigskirkja

 

Langur laugardagur hjá fermingarbörnum - 14. jan.

Á laugardaginn 14. janúar hefst fermingarfræðslan á vormisseri með löngum laugardegi. Við ætlum að hittast öll kl. 11 í safnaðarheimilinu og eiga saman ánægjulega samveru þar sem margt spennandi og skemmtilegt mun fara fram - grín og glens í bland við alvöru. Samveran stendur yfir til kl. 17. Foreldrar eru boðnir sérstaklega velkomnir og beðnir um að mæta kl. 15 til að taka þátt í samverunni. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!

Páll Ágúst Ólafsson, 12/1 2012 kl. 6.08

     

    Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS