Messa á sunnudaginn
Á sunnudaginn nk. þann 15. janúar verður messa í Háteigskirkju eins og vant er alla sunnudaga. Sr. Tómas Sveinsson mun þjóna fyrir altari og prédika. Kári Allansson mun þenja orgelið og stjórna almennum safnaðarsöng með Kirkjukór Háteigskirkju sér til halds og trausts. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með Hafdísi og Klemma og Rebba ref og öllum hinum vinum okkar.
Það eru allir hjartanlega velkomnir í Háteigskirkju!
Páll Ágúst Ólafsson, 13/1 2012 kl. 17.13