Háteigskirkja

 

Spennandi helgi í Háteigskirkju - messa og tónleikar.

Það verður nóg um að vera í kirkjunni um helgina - blanda af tónleikum og hefðbundnu helgihaldi. Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar fer fram um helgina víðsvegar um borgina og verða tvennir áhugaverðir og spennandi tónleikar haldnir í Háteigskirkju.

Á laugardag kl. 14 syngur Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarsson.

Á sunnudag er messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson prédikar og þjónar fyrir altari og  Judy Thorbergsson þenur orgelið undir almennum safnaðarsöng. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað. Við kynnum nýjan vin til leiks á sunnudag sem er hún Sólveig Ásta en hún er mjög spennt að fá að hitta alla krakkana og Hafdísi og Klemma og hina vini okkar. Það eru allir hjartanlega velkomnir!

Kl. 15 á sunnudag syngur Hamrahlíðakórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.

Nánari upplýsingar um dagskrá og verð Myrkra músíkdaga má finna á heimasíðu hátíðarinnar www.myrkir.is

Guð gefi þér góða helgi!

Páll Ágúst Ólafsson, 26/1 2012 kl. 20.23

     

    Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS