Fermingar 2012
Fermingarfræðsla er á fimmtudögum og hófst 1. september. Fræðslan á haustmisseri er vikulega í kirkjunni til 24. nóvember (alls 13 skipti). Á vormisseri verður fræðslan frá 19. janúar til 1. mars (alls 7 skipti). Við skiptum hópnum í þrennt.
- Piltar úr Hlíðaskóla mæta kl. 16:30
- Stúlkur úr Hlíðaskóla mæta kl. 17:15
- Piltar og stúlkur úr Háteigsskóla mæta kl. 18:00
Fermingardagar 2012 eru þessir:
- 1. apríl - Pálmasunnudagur
- 9. apríl - 2. páskadagur
- 15. apríl - Sunnudagur