Helgihald
Messað er alla sunnudaga kl. 11.00
Í messunni kemur söfnuðurinn saman til þess að eiga helga stund frammi fyrir Guði. Í Háteigskirkju hefur um langt árabil verið lögð á það áhersla að messa alla sunnudaga. Þegar talað er um messu, þá er þar með verið að gefa söfnuðinum til kynna að altarisganga er hluti af athöfninni. Eftir messu er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu. Þar er upplagt tækifæri til að hitta aðra, kynnast og eiga saman góða stund.
Fjölskyldumessa fjórða sunnudag í hverjum mánuði
Einu sinni í mánuði bjóðum við upp á fjölskyldumessu í kirkjunni. Messan verður með óhefðbundnu sniði þar sem unga fólkið fær að vera í forgrunni. Syngjum hressa og skemmtilega söngva og leyfum börnum og unglingum sem taka þátt í starfinu í kirkjunni að sýna og deila með okkur uppskeru starfsins.
Barnaguðsþjónustur/sunnudagaskóli eru alla sunnudaga (sept-maí) og hefjast kl. 11.00
Stundirnar hefjast í hefðbundinni messu fyrstu 10-15 mínúturnar en börnin færa sig svo yfir í safnaðarheimilið þar sem þau fá dagskrá við sitt hæfi.
Fyrirbænastund á miðvikudögum kl. 18.00
Fyrirbænastundir eru alla miðvikudaga, allt árið kl. 18.00 í Háteigskirkju. Stundirnar taka um 30 mínútur.
Fyrirbænir - Beðið er fyrir þeim sem þess óska!
Sr. Tómas Sveinsson, sem sér yfirleitt um bænastundirnar á miðvikudögum tekur á móti fyrirbænaefnum fyrirfram. Hægt er að ná í sr. Tómas í síma 511 5401 eða með tölvupósti á netfangið tomas.sveinsson(hjá)hateigskirkja.is
Taizémessur eru öll fimmtudagskvöld kl. 20.00 í Háteigskirkju
Hér hægra megin er að finna nánari upplýsingar og samantekt um Taizémessur og uppruna þeirra.