Fermingarbörn í Háteigskirkju fara í helgarferð í Vatnaskóg dagana 23. - 25. september. Farið verður frá Safnaðarheimili Háteigskirkju klukkan 19:30 föstudaginn 23. september. Komið verður til baka að safnaðarheimilinu sunnudaginn 25.september klukkan 12:15.
Ferðagjald er kr. 4.000
Í ferðina sjálfa fer starfsfólk Háteigskirkju og öll fermingarbörnin. Dagskrá helgarinnar samanstendur af fræðslu og skemmtun í Vatnaskógi og næsta nágrenni.
Björgvin Þórðarson, 19/9 2005
Sunnudaginn 4. september hefst formlega vetrardagskrá kirkjunnar. Ýmsar nýjungar verða í dagskránni. Alla sunnudaga verður messa klukkan 11:00 í kirkjunni en í vetur verður barnaguðsþjónustan á sama tíma. Þannig verða börn og fullorðnir saman í messunni til að byrja með. Síðan fara börnin yfir í safnaðarheimilið þar sem reyndir leiðtogar sjá um barnaguðsþjónustu fyrir þau.
Lesa áfram …
Björgvin Þórðarson, 2/9 2005
eflist líf í kirkjum landsins. Háteigskirkja mun hefja formlegt vetrarstarf sunnudaginn 4. september nk. Í vetur verður sá háttur hafður að barnamessur verða á sama tíma og hefðbundin messa í kirkjunni, þ.e. kl.11:00
Þá safnast allir saman í kirkjunni og taka þátt í hefðbundinni messu. 10-15 mínútum síðar munu börnin ganga úr kirkjunni í safnaðarheimlið þar sem þær Erla Guðrún Arnmundardóttir, Þóra Marteinsdóttir og Hrafnhildur Héðinsdóttir munu sjá um efni fyrir yngri kynslóðina. Að messu lokinni munu þau sem eftir sitja í messunni og vilja, ganga í safnaðarheimilið og þar verður boðið upp á léttan hádegisverð gegn mjög vægu gjaldi.
Það er von presta og starfsfólks kirkjunnar að þetta fyrirkomulag mælist vel fyrir og verði til ánægju og eflingar.
Þá er ljóst að þetta fyrirkomulag kallar á margar hendur til að taka þátt í undirbúningi og framkvæmd. Því munu liggja frammi listar þar sem fólk getur skráð sig sem sjálfboðaliða til að taka þátt í einstökum verkefnum þessu tengdu. Hægt er að skrá sig í eitt skipti allan veturinn eða oftar. Aðalatriðið er að margar hendur vinna létt verk. Slík þátttaka í verkefnum er bæði skemmtileg og gefandi, bæði þeim sem veitir og þiggur.
Nánar auglýst í messunum og í næsta fréttablaði Háteigskirkju.
Björgvin Þórðarson, 12/8 2005
Trú - líf - bæn
er yfirskrift fermingarnámskeiða Háteigskirkju veturinn 2005 - 2006. Að taka þá ákvörðun að fermast er tímamótaákvörðun. Það er því mikilvægt að vanda allan undirbúning. Stærsti þáttur fermingarundirbúningsins er sjálft fermingarnámskeiðið. Formlegt upphaf námskeiðsins er í skráningarmessu 28. ágúst kl.11:00. Þangað er öllum börnum á fermingaraldri í sókninni boðið að koma ásamt foreldrum eða forráðamönnum.
Björgvin Þórðarson, 12/8 2005
Í sumar verður dagskrá kirkjunnar með þeim hætti að helgihald er óbreytt. Messur hvern sunnudag kl. 11:00, bænasamverur á miðvikudögum kl. 18:00 og Taize messur hvern fimmtudag kl. 20:00.
Starf eldri borgara verður einnig með nokkuð hefðbundnum hætti svo og foreldramorgnar.
Ekkert æskulýðsstarf er í kirkjunni yfir sumarmánuðina.
Kirkjudagar verða á Skólavörðuholti dagana 24 og 25 júní. Þá daga verður Háteigskirkja opin og sýnd með leiðsögn presta.
Skoðið fréttir um Kirkjudaga http://www.kirkjan.is/kirkjudagar/
Björgvin Þórðarson, 3/6 2005
Lítil listahátíð verður haldin í Háteigskirkju, laugardaginn 7. maí n.k.
Hátíðin einkennist af listadagskrá sem flutt verður í kirkjunni frá kl. 14:00 til 18:00 þar sem listafólk kemur fram á hálftíma fresti.
Ekki er selt inn á þessa dagskrá heldur er kirkjan opin fyrir alla. Fólki er frjálst að koma og fara að vild. Fjölbreytni, skemmtun og frelsi er einkennandi fyrir daginn.
Lesa áfram …
Björgvin Þórðarson, 2/5 2005
Trú, líf og bæn er yfirskrift fermingarnámskeiðs Háteigskirkju 2005-2006.
Kynningarfundur fyrir væntanleg fermingarbörn og forráðamenn þeirra verður í Háteigskirkju fimmtudaginn 28. apríl n.k. kl. 18:00 í safnaðarheimilinu.
Björgvin Þórðarson, 25/4 2005
Vorferð Háteigskirkju verður laugardaginn 30.apríl. Farið verður frá kirkjunni kl. 10:00 og haldið í Vindáshlíð í Kjós. Þar eru sumarbúðir fyrir börn á vegum KFUM og KFUK. Á staðnum er hægt að fara í leiki og leiktæki, skoða sig um og fræðast um staðinn og margt fleira.
Snætt verður saman létt máltíð í hádeginu og að henni lokinni verður svolítil dagskrá með söng, glens og gamni. Heimkoma er ráðgerð milli kl. 14:00 og 15:00
Verð er kr. 500
Allir eru velkomnir og foreldrar hvattir til að koma með börn sín og eða barnabörn.
Ath. þessi ferð markar lok æskulýðsstarfs kirkjunnar á þessu misseri.
Björgvin Þórðarson, 25/4 2005
Barna- og unglingastarf kirkjunnar er nú komið í fullan gang. Nokkrar breytingar hafa orðið í starfsliði æskulýðsstarfsins. Ragnhildur Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin til að annast starf fyrir Ævintýrabirni og Ævintýraklúbbinn. Hún er menntaður kennari og djákni og hefur áralanga reynslu af starfi meðal barna og unglinga. Við bjóðum hana velkomna til starfa í Háteigskirkju.
Lesa áfram …
Björgvin Þórðarson, 21/1 2005
Sóknarnefnd Háteigskirkju hefur gefið kr. 100.000 til söfnunar vegna hamfaranna í Asíu. Fulltrúi sóknarnefndar afhenti Hjálparstarfi kirkjunnar ávísun í dag.
Jafnframt hvetur sóknarnefnd almenning allan til að styðja þessa söfnun. Hamfarirnar eru miklar og neyðin gífurleg. Jesús Kristur kennir okkur að elska náunga okkar. Hvert mannsbarn er náungi okkar og dýrmætur einstaklingur. Sýnum því stuðning í verki.
Björgvin Þórðarson, 31/12 2004