Bréf vegna fermingarstarfanna í Háteigskirkju ættu að berast í dag eða mánudag inn á heimili fermingarbarnanna. Þetta er fjórða foreldrabréfið til árgangsins. Í þetta skipti er sérstaklega minnt á söfnun sem fermingarbörnin taka þátt í fyrir Hjálparstarf kirkjunnar mánudaginn 1. nóvember.
Lesa foreldrabréfið.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 15/10 2004
Þriðja tölublað Háteigskirkjutíðinda þetta árið er komið út. Blaðinu verður dreift í hús í sókninni á næstu dögum en ætti að hafa borist í öll hús í síðasta lagi laugardaginn 16. október.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 13/10 2004
Björgvin Þórðarson var ráðinn sem framkvæmdastjóri í hálft starf frá 1. október síðastliðinn. Björgvin er fyrsti starfsmaður safnaðarins sem er ráðinn sérstaklega sem framkvæmdastjóri en Pétur Björgvin Þorsteinsson sem nú hverfur til starfa í Glerárkirkju á Akureyri hefur sinnt verkefnum framkvæmdastjóra auk þess að vera fræðslufulltrúi í Háteigskirkju.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 9/10 2004
Barnakór Háteigskirkju kemur fram í fyrsta sinn undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur í messu í Háteigskirkju, sunnudaginn 10. október klukkan ellefu.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 7/10 2004
Ung stúlka frá Austurríki, Miriam Rüggeberg, hefur nú lokið fyrsta mánuðinum sínum af samtals tólf mánuðum sem sjálfboðaliði í Háteigskirkju ,,í fullu starfi”. Miriam er fjórði sjálfboðaliðinn í röð sem tekur þátt í verkefninu ,,An honoured guest” en svo nefnist verkefni Háteigskirkju innan samevrópska verkefnisins ,,European volunteer service”.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 5/10 2004
Sunnudagurinn 3. október er tileinkaður þjónustu kirkjunnar og tekur messan í Háteigskirkju klukkan ellefu mið af því. Prestur er sr. Tómas Sveinsson. Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni predikar. Douglas A. Brotchie og kór Háteigskirkju sjá um tónlist og söng.
Nánar má fræðast um þennan dag á kirkjan.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 2/10 2004
Vinafundir hefjast aftur fimmtudaginn 7. október.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 30/9 2004

Þórdís Ásgeirsdóttir þjónustufulltrúi Háteigssóknar fór með yfir 40 eldri borgurum í skemmtilega haustlitaferð í síðustu viku. Miriam Rüggeberg sjálfboðaliði Háteigskirkju var með í för og tók nokkrar myndir sem við birtum hér á vefnum.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 28/9 2004
Fimmtudaginn 30. september 2004 kemur hjúkrunarfræðingur í heimsókn á foreldramorgunn og fræðir viðstadda um veikindi barna, þá sérstaklega algengustu kvillana. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga frá 10.00 til 12.00 í Setrinu, á neðri hæð safnaðarheimilis Háteigskirkju.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 25/9 2004
Um 80 fermingarbörn dvelja nú í Vatnaskógi ásamt 15 starfsmönnum úr Vatnaskógi og Háteigskirkju. Dagskráin hefur farið vel af stað í morgun og birtum við hér á síðunni fyrstu myndir úr fræðslustundum morgunsins.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/9 2004