Háteigskirkja

 

Norræn ráðstefna um guðfræðinám

Í dag, fimmtudaginn 26. september, hefst norræn ráðstefna í safnaðarheimili Háteigskirkju um guðfræðinám. Yfirskrift ráðstefnunnar sem stendur fram á laugardagskvöld er ,,Hur praktisk bör den teologiska utbildningen vara?”

Nánar á guðfræði.is

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 16/9 2004

Douglas A. Brotchie á einleikstónleikum í Hallgrímskirkju

Douglas A. Brotchie organisti Háteigskirkju leikur og kynnir nokkur litrík og tignarleg orgelverk eftir ýmsa höfunda á Klais-orgel Hallgrímskirkju laugardaginn 18. september kl. 12:00. Ungt fólk er sérstaklega hvatt til að mæta á þessa hádegistónleika Listvinafélags Hallgrímskirkju.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 13/9 2004

Septemberbréf fermingarstarfanna

Bréf mánaðarins til fjölskyldna fermingarbarna vorsins 2005 var póstlagt í dag, föstudag. Þar er m.a. minnt á fjölskyldufund miðvikudagskvöldið 15. september og ferðalag í Vatnaskóg 17. - 19. september.

Lesa bréfið.

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 10/9 2004

Góð viðbrögð við bættu aðgengi Háteigskirkju

Nú þegar safnaðarstarfið er að fara af stað aftur eftir haustfrí vekur það athygli hjá mörgum hve vel hefur tekist til með endurbætur á aðgengi við aðalinngang Háteigskirkju en þær framkvæmdir fóru fram í byrjun sumars.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 8/9 2004

Fjölbreytt og fín tónlist í messum í Háteigskirkju

Messugestum í Háteigskirkju er boðið upp á fína og fjölbreytta tónlist. Þó það sé áberandi að gömlu meistararnir Bach og Buxtehude séu spilaðir oftast eiga fleiri tónskáld verk á listanum.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 7/9 2004

Fjölbreytt dagskrá í Ævintýraklúbbnum

Börnum úr fjórða og fimmta bekk er boðið að taka þátt í Ævintýraklúbbnum, kristilegu tómstundastarfi á vegum Háteigskirkju. Valdís Eyja Pálsdóttir sem hefur umsjón með Ævintýraklúbbnum skrifar lítið bréf hér á vefinn í tilefni þess að starfið er að fara af stað.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 6/9 2004

Barnaguðsþjónustur á sunnudögum klukkan eitt

Barnaguðsþjónustur í Háteigskirkju hefjast sunnudaginn 5. september. Þær verða eins og síðastliðinn vetur klukkan eitt eftir hádegi. Umsjón með barnaguðsþjónustunum hafa Ólafur Jóhann Borgþórsson, guðfræðinemi og Sigríður Árnadóttir, fræðslufulltrúi.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 4/9 2004

Vetrarstarfið hafið

Vikuleg dagskrá vetrarstarfs Háteigskirkju er sem hér segir:

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 31/8 2004

Fermingarfræðslan hefst miðvikudaginn 1. september

Fermingarfræðslan hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 1. september.
Nemendur úr 8. bekk Háteigsskóla mæta klukkan 15:00
Nemendur úr 8.Þ.F. Hlíðaskóla mæta klukkan 15:30
Nemendur úr 8.Í.R. Hlíðaskóla mæta klukkan 16:00
Nemendur úr 8.E.B. Hlíðaskóla mæta klukkan 16:30

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 30/8 2004

Skráningarmessa á sunnudaginn

Næstkomandi sunnudag, 29. ágúst er skráningarmessa fyrir fermingarbörn vorsins 2005. Messan hefst klukkan 11:00. Að henni lokinni fer fram skráning. Við minnum á að efnisgjald kr. 1000 greiðist við skráningu.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 27/8 2004

Háteigskirkja er opin virka daga kl. 9:00 til 17:00.

Sr. Tómas Sveinsson, sóknarprestur.
Viðtalstímar mán-fim kl. 11-12.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, prestur.
Viðtalstímar þri-fös kl. 11-12.

Tenglar:
Trú.is
Barnatrú.is
Hvað er þjóðkirkjan?
Biblían á netinu

 

Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS