Háteigskirkja

 

Kynning hafin á tómstundastarfi fyrir börn

Mikil áhersla er lögð á samvinnu barna sem sækja tómstundastarf HáteigskirkjuKynning á tómstundastarfi fyrir börn í Háteigskirkju veturinn 2004 - 2005 er hafin. Boðið er upp á barnakór fyrir börn úr öðrum, þriðja og fjórða bekk auk þess sem ævintýraklúbburinn, ævintýrabirnirnir og ttt-klúbburinn eru á sínum stað. Starfið hefst mánudaginn 30. ágúst.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 26/8 2004

Ánægjuleg starfsþjálfun

Í safnaðarstarfi Háteigskirkju er lögð rík áhersla á menntun starfsfólks. Liður í þeirri viðleitni er að ungir leiðtogar eru hvattir til þess að sækja námskeið og taka þátt í ýmisskonar starfsþjálfun.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 25/8 2004

Nýr kórstjóri barnakórs

Sigrún Magna ÞórsteinsdóttirSigrún Magna Þórsteinsdóttir hefur verið ráðin í 25% stöðu barnakórstjóra Háteigskirkju. Kórinn sem mun æfa á þriðjudögum frá 15:30 til 16:30 er ætlaður börnum úr öðrum, þriðja og fjórða bekk. Sigrún Magna hefur skrifað kynningartexta sem er að finna hér á vefsvæði Háteigskirkju.

Lesa kynningu.

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 24/8 2004

Foreldrabréf vegna fermingarnámskeiðs Háteigskirkju

Bréf til foreldra og forráðafólks barna úr fermingarárgangi ársins 2005 fór í póst í gær og ætti að berast flestum næstkomandi mánudag. Með bréfinu er boðað til skráningarmessu sem verður sunnudaginn 29. ágúst klukkan 11:00. Námskeiðið hefst svo miðvikudaginn 1. september.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 21/8 2004

Nýr fræðslufulltrúi

Sigríður ÁrnadóttirSigríður Árnadóttir eða Sigga eins og flestir kalla hana hefur verið ráðin í 80% starf fræðslufulltrúa Háteigskirkju. Sigga, sem þegar er komin á fullt við undirbúning vetrarstarfsins kynnir sig nánar hér á vefsvæði Háteigskirkju.

Lesa kynningu

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/8 2004

Undirbúningur fyrir vetrarstarf kirkjukórsins hafinn

Nýskráning í kór Háteigskirkju stendur yfir. Starf kórsins er undir leiðsögn Dr. Douglas Brotchie organista og kórstjóra. Söngelskir einstaklingar eru hvattir til að kynna sér starf kórsins nánar!

Lesa áfram …

Douglas Brotchie, 16/8 2004

Garðmessa og grill

Stefnt er á garðmessu og grill á lóð Háteigskirkju sunnudaginn 15. ágúst. Tilvalin stund fyrir fólk á öllum aldri. Messan hefst kl. 11:00.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 2/8 2004

Góðir gestir um verslunarmannahelgina

Gestir víða að úr Evrópu sækja Háteigskirkju heim um verslunarmannahelgina. Annars vegar mun stjórn EYCE, evrópskra, ekúmenískra æskulýðssamtaka halda stjórnarfund í safnaðarheimilinu og hins vegar mun um 50 manna hópur frá kristniboðssamtökunum í Liebenzell í Þýskalandi taka þátt í helgihaldi sunnudagsins.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 25/7 2004

Taizé í kvöld kl. 20:00

Væri ekki tilvalið að mæta í kvöld á Taizé-stund í Háteigskirkju klukkan átta?

Lesa áfram …

Tómas Sveinsson, 22/7 2004

Douglas leikur í Hallgrímskirkju

Um næstkomandi helgi, 17. og 18. júlí kemur Douglas, organisti Háteigskirkju, fram á tvennum tónleikum í Hallgrímskirkju, klukkan tólf á laugardeginum og klukkan átta á sunnudagskvöldinu.

Lesa áfram …

Pétur Björgvin Þorsteinsson, 14/7 2004

Háteigskirkja er opin virka daga kl. 9:00 til 17:00.

Sr. Tómas Sveinsson, sóknarprestur.
Viðtalstímar mán-fim kl. 11-12.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, prestur.
Viðtalstímar þri-fös kl. 11-12.

Tenglar:
Trú.is
Barnatrú.is
Hvað er þjóðkirkjan?
Biblían á netinu

 

Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS