Óvissuferðin endaði í breakdansi
Á dagskrá TTT klúbbsins síðasta mánudag var óvissuferð. Í þetta sinn kom hún öðruvísi á óvart því hún var innanhúss. Natasja, kennari Kramhússins í breakdansi kom í heimsókn.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 30/1 2003
Á dagskrá TTT klúbbsins síðasta mánudag var óvissuferð. Í þetta sinn kom hún öðruvísi á óvart því hún var innanhúss. Natasja, kennari Kramhússins í breakdansi kom í heimsókn.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 30/1 2003
Berlín, höfuðborg Þýskalands er að þessu sinni gestgjafi þýsku kirkjudaganna sem haldnir verða um mánaðarmótin maí-júní. í fyrsta sinn er hátíðin samkirkjuleg. Pétur Björgvin segir nánar frá þessum dögum í grein á kirkjan.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 28/1 2003
Stöðug endurskoðun á eigin safnaðarstarfi felur einnig í sér að horft sé út fyrir litla heiminn sem við búum í og hugmyndir annars staðar frá notaðar til þess að auðga ímyndaraflið. Í stuttri skýrslu um háskóla fermingarbarnanna í litlu bæjarfélagi í suður Þýskalandi er einmitt að finna hugmyndir sem gætu nýst hér heima á Fróni.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 22/1 2003
Messan í Háteigskirkju næstkomandi sunnudag er tileiknuð safnaðarstarfinu á vorönn. Af því tilefni mun Arnfríður Einarsdóttir, varaformaður sóknarnefndar predika. Messan hefst kl. 14.00.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 21/1 2003
Á morgun, miðvikudag mæta fermingarbörn Háteigssóknar til starfa að loknu jólafríi.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 21/1 2003
Ný dögun - samtök um sorg og sorgarviðbrögð stendur fyrir fyrirlestri í safnaðarheimili Háteigskirkju, fimmtudaginn 23. janúar 2003 kl. 20.00 til 22.00. Þar mun sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur halda framsögu um efnið: “Að syrgja saman - Börn og fullorðnir í sorg.” Að erindinu loknu gefst kostur á umræðum og fyrirspurnum.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 21/1 2003
Kirkjukór Háteigskirkju æfir á miðvikudagskvöldum klukkan átta í safnaðarheimili Háteigskirkju undir stjórn Douglasar A. Brotchie, organista og kórstjóra Háteigskirkju, douglas@hateigskirkja.is
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 21/1 2003
Biblíuskólinn við Holtaveg og Kristilegt félag heilbrigðisstétta halda málþing um siðferðisspurningar á sviði líftækninnar, miðvikudaginn 29. janúar 2003 kl. 17.00 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Nánari upplýsingar í síma 588 8899.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 21/1 2003
Fjöldi barna og unglinga mætti á fyrstu æfingar hjá nýjum barnakórstjóra í síðustu viku, en þær æfingar voru hugsaðar sem nokkurs konar kynning á kórastarfinu. Í dag hefjast svo reglulegar æfingar stúlknakórsins kl. 18.00.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 20/1 2003
Dagana 9. til 15. janúar 2003 sótti Pétur Björgvin Þorsteinsson, fræðslufulltrúi Háteigskirkju ráðstefnu í Svartaskógi um sjálfboðið starf í Evrópu. Skýrslu hans er að finna á bloggsíðu sjálfboðaliðastarfs Háteigskirkju.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 19/1 2003
Háteigskirkja er opin virka daga kl. 9:00 til 17:00.
Sr. Tómas Sveinsson, sóknarprestur.
Viðtalstímar mán-fim kl. 11-12.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, prestur.
Viðtalstímar þri-fös kl. 11-12.
Tenglar:
Trú.is
Barnatrú.is
Hvað er þjóðkirkjan?
Biblían á netinu
Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi ![]()