Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar er í dag. Á kirkjan.is er bæði að finna texta dagsins sem og stuttan pistil í tilefni þess að hugmyndin á bak við æskulýðsdaginn er 50 ára á þessu ári.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 2/3 2003
Á morgun mun Kristín Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla fjalla um velferð og réttindi barna á foreldramorgni sem hefst í Safnaðarheimili Háteigskirkju klukkan tíu.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 26/2 2003
Við hér í Háteigskirkju höfum verið að vinna að því að setja markmið æskulýðsstarfsins niður á blað. Innlegg í þá umræðu er grein sem fræðslufulltrúi Háteigskirkju birti í nýjasta tölublaði Víðförla sem var að koma út. Greinina má líka lesa hér
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 23/2 2003
Næstkomandi sunnudag heldur Þjóðkirkjan æskulýðsdaginn hátíðlegan.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 23/2 2003
Í barnaguðsþjónustu í Háteigskirkju, sem hefst klukkan ellefu á morgun sunnudag, verður að þessu sinni boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Fluttir verða leikþættirnir Fjöðrin sem varð að fimm hænum” og Ævintýrið um Stein Bollason” í flutningi leikkvennanna Helgu Steffensen og Helgu E. Jónsdóttur. Það verður því mikið um dýrðir á þessum konudegi í Háteigskirkju. Barnaguðsþjónustan þennan dag er undir stjórn sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur, Guðrúnar Helgu Harðardóttur og Douglasar A. Brotchie. Þá minnum við á að sunnudaginn 2. Mars, sem er Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar eru foreldrar og börn hvött til þess að taka þátt í Pálínuboði í safnaðarheimilinu sem hefst klukkan tíu.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 22/2 2003
Í tilefni konudagsins mun Garðar Thór Cortes syngja stólvers í messu á morgun, sunnudag kl. 14.00. Garðar mun flytja 23. Davíðssálm við lag eftir Antonin Dvorák. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og organisti Douglas A. Brotchie.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 22/2 2003
Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð standa fyrir fræðslukvöldi í safnaðarheimili Háteigskirkju næstkomandi fimmtudagskvöld, 20. febrúar kl. 20. til 22. Þar mun Rósa Kristjánsdóttir, djákni flytja erindi um systkinamissi. Allir velkomnir.
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/2 2003
Reglubundinni fermingarkennslu á fermingarnámskeiði vetrarins er nú óðum að ljúka. Í marsmánuði tekur öll dagskrá mið af því að fermingar eru í apríl. Þannig er kyrtlamátun 4. mars og sérstakir pizzudagar á dagskránni þar sem að fermingarhóparnir hittast til þess að ræða um altarisgönguna og fleira.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/2 2003
Hefur þú velt því fyrir þér hvenær fermingarkyrtlarnir komu fyrst til landsins? Hér á hateigskirkja.is er að finna lítinn fróðleiksmola um fyrstu fermingarkyrtlana á Íslandi.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 18/2 2003
Það er ástæðulaust að láta börnin bíða lengur! Sumardagskrá Háteigskirkju Sögur og leikir má nú finna hér á hateigskirkja.is. Dagskráin er sérstaklega hönnuð fyrir krakka sem vilja eiga hvíla sig á rútu- og strætóferðum.
Lesa áfram …
Pétur Björgvin Þorsteinsson, 17/2 2003