Háteigskirkja

 

Útleiga

Glæsilegir salir

Veislusalur á efri hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju tekur allt að 130 manns í sæti við borð en annars um 180 manns standandi. Salurinn er sérstaklega heppilegur og glæsilegur fyrir ýmiskonar veisluhöld, eins og brúðkaup, fermingarveislur, afmæli og erfidrykkjur sem og fyrir ýmiskonar fundi og námskeið.

Á neðri hæð safnaðaheimilisins er salur sem kallaður er “Setrið” sem hentar vel fyrir smærri samsæti. Hann getur tekið um 25-30 manns í sæti en annars um 50 manns standandi.

Komdu og skoðaðu!

Við viljum hvetja þá sem eru að hugsa um að halda veislu eða aðra uppákomu að koma og skoða salina sem að í boði eru á opnunartíma kirkjunnar milli kl. 09.00 og 17.00 alla virka daga. Nánari upplýsingar, bókanir og verð fást hjá kirkjuvörðum í síma 511 5400 eða senda póst á hateigskirkja@hateigskirkja.is

     

    Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík. Sími 511 5400 , fax 511 5411 · Kerfi RSS