Af uppbyggjandi poppmessu í Vopnafjarðarkirkju
Sunnudaginn 7. mars var æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar og að því tilefni var æskulýðsguðsþjónusta í Vopnafjarðarkirkju. Guðsþjónastan var mjög vel sótt og 100 manns keyptu kaffi og kökur í árlegru kaffisölu æskulýðsfélagsins. Að mörgu þurfti að huga og undirbúa og lögðu krakkarnir á sig mikla vinnu við undirbúninginn og eiga þau mikið hrós skilið fyrir.
Þátttaka barnanna var áberandi í guðsþjónustunni, en ásamt hljómsveitinni Kleópötru sáu börn úr tónlistarskólanum um tónlistarflutninginn. Börn úr 10-12 ára starfinu sýndu helgileikinn “Lát trú þína bera ávöxt”, sem var þema æskulýðsdagsins í ár. Þá lásu fermingarbörn ritningarlestra og voru með bænir.
Unglingarnir í æskulýðsfélagi Hofsprestakalls - Kýrosi - bökuðu kökurnar fyrir kaffisöluna og sáu alfarið um kaffisöluna og skreyttu kirkjunnar og safnaðarheimilið með litríkum borðum, greinum, pappír, ávöxtum og greinum. Þau mættu á laugardeginum til að baka og skreyta, leggja á borð og gera allt tilbúið fyrir æskulýðsdaginn. Mörg mættu svo á sunnudagsmorgninum til að baka vöfflur og hella upp á kaffi. Það var einstakt að upplifa stemminguna, gleðina og eftirvæntinguna í hópnum og hvað allir voru tilbúnir að leggjast á eitt, líka að ganga frá eftir kaffisöluna og taka til. Árangur kaffisölunnar var líka góður, en það söfnuðust 50.000.- kr. til Hjálparstarfs kirkjunnar meðal barna í Úganda sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi.
Fáar guðsþjónustur á Vopnafirði hafa verið jafn vel auglýstar og kynntar í fjölmiðlum, en krakkarnir í auglýsingar- og kynningarhópnum fengu mjög góð viðbrögð við fréttatilkynningunni sinni og voru líka óhrædd að hafa samband við fjölmiðlafólk. Það sýndi sig að fjölmiðlar fjalla ekki bara um unglinga þegar þau gera eitthvað af sér eða haga sér ill - það hafa unglingarnir á Vopnafirði svo sannarlega sýnt. Þeirra starf er okkur öllum þörf hvatning um að láta verkin tala!

Guðsþjónustan var einstök stund með fjölbreyttri tónlist og virkri þátttöku barna, unglinga og kirkjufólks. Í lokin sungu öll börnin með hljómsveitinni lagið “Hallelúja” eftir Leonard Cohen og tóku vel undir. Reynslunni er best lýst með orðum eins kirkjugestsins sem sagði: “Ég vildi að lagið hefði verið miklu lengra.”
Það er óhætt að segja að samstaða, jákvæðni og samvinna barnanna hafi skinið skært þegar þau uppskáru svo ríkulega á sunnudaginn í þakklæti og gleði kirkjufólksins. Það má með sanni segja að trú þeirra hafi borið ríkulegan ávöxt. Eða eins og einn unglingurinn sagði: “Hvernær er messað næst?”
Merki: börn, hjálparstarf, poppmessa, unglingar, æskulýðsstarf
Stefán Már Gunnlaugsson, 9/3 2010 kl. 11.26

