Hofsprestakall

 

Leikjanámskeið Hofsprestakalls

Vikuna 16.-20. ágúst er leikjanámskeið Hofsprestakalls í fullum gangi fyrir börn fædd 2000-2004 og eru 20 börn skrá á námskeiðið. Námskeið sem þetta er nú í fyrsta skiptið haldið á vegum kirkjunnar á staðnum.

Námskeiðið hófst í gær með samverustund í kirkjunni, síðan var farið í leiki og eftir drekkutíma var farið í göngutúr í leit að plöntum, jurtum og blómum fyrir föndur á miðvikudaginn. Í dag var farið í ferðalag til Bakkafjarðar, þar sem við fórum í leiki á fótboltavellinum og síðan var farið í fjársjóðsleit. Eftir samverustund í Skeggjastaðakirkju var haldið heim.

Á morgunn verður farið í ratleik og föndrað. Það er gaman að sjá hvað börnin hafa gaman að því að taka þátt, glöð og ánægð. Allir jákvæðir og vilja vera með, bæði þau yngstu og elstu.

Leiðbeinandi á námskeiðinu auk sóknarprests eru Kristín Jónsdóttir og til aðstoðar Matthildur Ósk Óskarsdóttir og Glódís Ingólfsdóttir.

Stefán Már Gunnlaugsson, 17/8 2010 kl. 17.04

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS