Hofsprestakall

 

“Ég táraðist af gleði”

Unglingarnir í Vopnafjarðarkirku stóðu í ströngu í dag með því að setja punktinn yfir Vinavikunna 2011 á Vopnafirði. Þar voru hendur látnar standa fram úr ermum. Vopnfirðingar fjölmenntu í kirkjuna og þáðu veitingar sem unglingarnir buðu upp á. Einnig gengu þau í öll hús á Vopnafirði og buðu fram aðstoð sína við heimilisverkin.

Vopnfirðingar voru örlátir í stuðningi sínum við kærleiksframtak unglinganna og söfnuðust yfir 300.000.- kr. í frjálsum framlögum, sem varið verður til þess að styrkja ferð æskulýðsfélagsins á Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar á Selfossi og til styrktar munaðarlausum börnum í Japan.

Kærleiksmaraþoninu lauk með Vinamessu í Vopnafjarðarkirkju. Þar voru samankomin á annað hundra manns og unglingarnir stóðu fyrir helgihaldinu, þ.m.t. kirkjusöngnum, ásamt sóknarpresti. Guðsþjónustan var sannkallað vinamót. Í lok messunnar sungu unglingarnir „Hjálpum þeim“, sem þau höfðu æft síðustu vikur undir stjórn orgnistans. Fullorðin kirkjugestur sagði eftir messuna: „Söngurinn var svo fallegur að ég táraðist af gleði.“

Eftir messuna var pítsuveisla í safnaðarheimilinu og svo lauk dagskránni með flugeldasýningunni. Minnast menn þess ekki að messulok hafi farið fram með slíkum hætti.

Langur dagur að baki í kirkjunni á Vopnafirði þar sem unglingarnir lögðu sig fram frá morgni til kvölds. Um 30 unglingar taka virkan þátt í æskulýðsstarfi kirkjunnar á Vopnafirði.

Þetta framtak sýnir hve unga fólkið má sín mikils með frábærum verkum.


Stefán Már Gunnlaugsson, 23/10 2011 kl. 20.23

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS