Messur í Hofsprestakalli á allra heilagra messu
Sunnudaginn 6. nóvember verður messað í Vopnafjarðarkirkju kl. 11:00 og í Hofskirkju kl. 14:00. Látinna verður minnst. Kirkjugestum boðið að tendra ljós í minningu látinna ástvina. Sunnudagaskóli verður í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju.
Sunnudagaskólinn í Vopnafjarðarkirkju hefst með þátttöku í messunni, en fyrir prédikun fara börnin í safnaðarheimilið þar sem samveran heldur áfram.
Félagar úr æskulýðsfélagi Hofsprestakalls segja ferð sinni á Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar sem haldið var á Selfossi og sýndar verða myndir úr ferðalaginu.
Verum öll hjartanlega velkomin.
Stefán Már Gunnlaugsson, 2/11 2011 kl. 10.45