Hofsprestakall

 

Jól í skókassa

Undanfarin ár hafa kirkjurnar á Vopnafirði tekið þátt í verkefninu “Jól í skókassa“, sem er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki.

Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa.

Skókassarnir verða sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 46 milljónir manna. Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift ríkir mikil örbirgð. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt.  Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu er faðir Evheniy Zhabkovskiy sem komið hefur hingað til lands í heimsókn.

Síðasti skildagur skókassa á Vopnafirði er fimmtudagurinn 10. nóvember.

Stefán Már Gunnlaugsson, 9/11 2011 kl. 10.54

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS