Af söfnun fermigarbarna á Vopnafirði til hjálparstarfs
Fimmtudaginn 10. nóvember gengu börn sem taka þátt í fermingarfræðslunni í hús og söfnuðu framlögum til hjálparstarfs. Alls safnaðist 81.584.- kr.
Söfnunin hófst með fræsðlu um aðstæður munaðarlausra systkina í Úganda, sem búa ein og þurfa á hverjum degi að fara um langan veg til að sækja sér vatn í opin brunn. Einnig var sagt frá starfi Hjálparstarfs kirkjunnar þar í landi að gefa fóki aðgang að drykkjarhæfu vatni með vatnsbrunnum.
Þá gengu börnin í hús með bauka merkta Hjálparstarfi kirkjunnar og að loknu góðu dagsverki var öllum boðið upp á pítsu og gos. ög.
Það var gaman að vera með börnunum og upplifa samhug þeirra með þeim sem minna mega sína og áhuga að leggja sitt að mörkum. Þá er vert að þakka þeim fjölmörgu sem tóku svo vel á móti börnunum og gáfu til söfnunarinnar.
Stefán Már Gunnlaugsson, 16/11 2011 kl. 14.03