Bíó í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju
Sunnudaginn 29. janúar, kl. 15:00 stendur æskulýðsfélag Hofsprestakalls - Kýros - fyrir kvikmyndasýningu í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Sýnd verður myndin “Animals United”. Miðaverð er 200.- kr.
Sjoppa verður á staðnum; popp, gos og sælgæti. Ágóði sölunnar rennur í ferðajóð æskulýðsfélagsins.
Fyrir sýningu myndarinnar verður sýndur þáttur með Hafdísi og Klemma úr Sunnudagaskólanum.
Verum öll hjartanlega velkomin.
Stefán Már Gunnlaugsson, 26/1 2012 kl. 12.16