Hofsprestakall

 

Kaffihúsamessa í Kaupvangskaffi og Sunnudagaskóli

Á konudaginn, nk. sunnudag 18. feb., kl. 15:00 verður kaffihúsamessa í Kaupvangskaffi. Sunnudagaskóli verður á sama tíma í Múlastofu. Léttir sálmar og söngvar og umgjörðin með kaffihúsabrag.

Við messuna syngur Karlkór Vopnafjarðar, leiðtogaefni sem hafa tekið þátt í Farskóla kirkjunnar á Norðausturlandi verða útskrifuð og unglingar munu selja happdrættismiða í Vinahappdrætti æskulýðsfélagsins.

Gott að koma tímanlega og fá sér kaffibolla og meðlæti og njóta svo samverunnar í messunni.

Verum öll hjartanlega velkomin.

Stefán Már Gunnlaugsson, 17/2 2012 kl. 9.02

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS