Hofsprestakall

 

Myndir frá kaffihúsamessu á konudaginn

Sunndaginn 19. febrúar var kaffihúsamessa á konudaginn í Kaupvangskaffi. Fjölmenni var við messuna og nutu kaffiveitinga á Ágústu og góðrar stundar, en við messuna söng Karlakór Vopnafjarðar undir stjórn Stephen Yates. Sunnudagaskóli var á sama tíma í Múlastofu og var mikið fjör og gaman og heyrðist stundum vel niður. Við lok messunnar gaf Landsbankinn á Vopnafirði öllum konum rós í tilefni dagsins. Ari G. Hallgrímsson tók myndir við messuna og má þær finna á heimasíðu hans.

Stefán Már Gunnlaugsson, 22/2 2012 kl. 9.23

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS