Hofsprestakall

 

Æskulýðsmessa og árleg kaffisala æskulýðsfélagsins

Í tilefni af æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar sem var sunnudaginn síðastliðinn sunnudag verður æskulýðsmessa fyrir alla í Vopnafjarðarkirkju kl. 15:00, sunnudaginn 11. mars. Árleg kaffisala æskulýðsfélagsins verður í safnaðarheimilinu eftir messuna.

Guðsþjónusta fyrir alla. Barnakórinn, kirkjukórinn og unglingar syngja. Börn úr tónlistarskólanum verða með tónlistaratriði og hljómsveit spilar. 10-12 ára börn taka þátt og unglingar lesa ritningarlestra og verða með bænir.

Eftir messuna verður æskulýðsfélag Hofsprestakalls með kaffisölu til styrktar þrælabörn á Indlandi. Kaffi, kökur og djús kr. 850.- kr. Frítt fyrir börn yngri en 10 ára í fylgd með fullorðnum.

Komum og eigum saman gæðastund með börnunum í kirkjunni okkar.

Stefán Már Gunnlaugsson, 7/3 2012 kl. 10.18

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS