Léttmessa og messukaffi fermingarbarna
Sunnudaginn 22. apríl verður guðsþjónusta í Vopnafjarðarkirkju kl. 14:00.Áhersla á létta söngva og sálma. Davíð Þór Jónsson, guðfræðingur og fræðslufulltrúi Austurlandsprófastsdæmis prédikar. Eftir guðsþjónustuna bjóða fermingarbörnin öllum í messukaffi.
Í kaffinu verða sýndar ljósmyndir frá móti 10-12 ára barna á Eiðum um síðustu helgi.
Komum og eigum góða stund í kirkjunni og þiggjum góðgjörðir hjá fermingarbörnunum.
Verum öll hjartanlega velkomin
Stefán Már Gunnlaugsson, 18/4 2012 kl. 14.25