Hofsprestakall

 

Af fjölskyldudegi á sumardaginn fyrsta

Sumardaginn fyrsta 19. apríl var haldinn fjölskyldudagur á Vopnafirði í samstarfi við félagasamtök og Vopnafjarðarhrepp. Dagurinn hófst í kirkjunni, þar sem boðið var upp á andlitsmálun og svo var fjölmenn samverustund í kirkjunni, þar sem 10-12 ára börnin léku stillimyndir, góðir gestir komu í heimsókn, í lok stundarinnar féllu blöðrur niður úr loftinu og öll börn fengu glaðning frá kirkjunni í tilefni dagsins.

Kirkjan var öll skreytt með blöðrum og í tilefni af komu sumars var búið að setja sólir í glugga kirkjunnar. Unglingar í æskulýðsfélaginu sáu um að skreyta kirkjuna og safnaðarheimilið, mála börnin og dreifa blöðrunum og leiðtogarefnin tóku virkan þátt í stundinni.

Eftir stundina í kirkjunni var farið í skúrðgöngu um bæinn sem lauk við félagsheimilið Miklagarð, þar var farið í ratleik, hjólreiðarbraut og reiptog. Jafnframt skoðaði lögreglan reiðhjól barnanna og deginum lauk með kaffi Björgunarsveitarinnar og kökubasar Slysavarnarfélagsins Sjafnar.

Unglingum í æskulýðsfélaginu er þakkað fyrir þeirra framlag og leiðtogaefnunum Örnu, Debóru, Ágústu og Steindóru fyrir alla astoðina í vetur í Sunnudagaskólanum.

Stefán Már Gunnlaugsson, 20/4 2012 kl. 10.46

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS