Óvissuferð 10-12 ára starfsins
Á þriðjudaginn var síðasta samveran í 10-12 ára starfinu og að því tilefni var farið í óvissuferð. Hér fyrir naðan er stutt ferðasaga og myndir frá ferðinni.
Lagt var af stað frá safnaðarheimilinu og fyrsti áfangastaðurinn voru Svínabakkar. Þar tóku á móti okkur Þórdís og Jóhann og sýndu okkur fjósið. Mikla athygli vakti hjá krökkunum nýfæddur kálfur og kettlinga. Næsti viðkomustaður voru Síreksstaðir, þar sem við sáum geldneyti, endur og nýfædd lömb og borðuðum nestið okkar. Þrátt fyrir kalt veður var farið í nokkra leiki áður haldið var áfram, en næst var farið í Hofskirkju þar sem var samverustund í kirkjunni og óvissuferðinni lauk með því að allir fengu ís í Ollasjoppu.
Góður og viðburðaríkur vetur að baki í 10-12 ára starfinu með áhugasömum og virkum krökkum.
Stefán Már Gunnlaugsson, 10/5 2012 kl. 10.45









