Hofsprestakall

 

Óvissuferð unglingastarfsins

Fimmtudaginn 10. maí var farið í óvissuferð með unglingunum á Vopnafirði. Ferðin var í samstarfi með Björgunarsveitinni Vopna, félagsmiðstöðinni Drekanum og æskulýðsfélagi Hofsprestakalls.

Ferðin hófst við safnaðarheimilið og var gengið fylgtu liði niðrá höfn. Þar beið björgunarsveitarbáturinn  okkar og var farið í siglingu um fjörðinn og fengu krakkarnir einnig að fara á gúmíbát sveitarinnar. Þegar í land var komið var farið með rútu í veiðihúsið í Vesturárdal. Þegar þangað var komið voru allir orðnir mjög svangir og var boðið upp á grillmat. Ferðinni lauk með sundlaugardiskó í sundlauginni Selárdal.

Skemmtileg ferð þar sem svo margir lögðu hönd á plóg og aðstoðuðu til að gera ferðina sem eftirminnilegasta. Óvissuferðin var síðasta samveran í unglingastarfi kirkjunnar og að baki er einstaklega viðburðarríkur vetur þar sem unglingarnir lögðu svo mikið af mörkum til kirkjustarfsins og samfélagsins.

Stefán Már Gunnlaugsson, 11/5 2012 kl. 10.13

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS