Hofsprestakall

 

Kirkjuhátíð eldri borgara

Uppstigningardag, 17. maí, kl. 14:00 verður guðsþjónusta í tilefni af degi eldri borgara í Hofskirkju.

Sameiginleg kirkjuhátíð eldri borgara á Vopnafirði, Bakkafirði, Þórshöfn og Þistilfirði verðu rí Hofskirkju á uppstigningardag. Hátíðin hefst með guðsþjónustu þar sem sóknarprestar Hofs- og Langanesprestakalls þjóna fyrir altari.

Vopnafjarðardeild Rauða krossins býður upp á kaffiveitingar í Staðarholti eftir messu. Þá er öllum boðið að kynna sér sögu Hofs og sagnaslóðir Vopnfirðingasögu.

Boðið er upp á rútuferð til Hofskirkju og lagt verður af stað kl. 13:30 frá Sambúð.

Verum öll hjartanlega velkomin.

Stefán Már Gunnlaugsson, 14/5 2012 kl. 11.53

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS