Hofsprestakall

 

Undirbúningur fyrir Vinavikuna 2012, 14.-21. október

Undanfarin ár hefur æskulýðsfélag Hofsprestakalls haldið Vinaviku á Vopnafirði, sem hefur vakið mikla athygli. Nú í ár verður Vinavikan haldin í þriðja skiptið dagana 14.-21. október, 2012.

Undirbúningur vegna vikunnar er þegar hafing og hefur bréf verið sent út til allra félaga, stofnanna og fyrirtækja á Vopnafirði með boð um samvinnu og samstarf við undirbúning vikunnar, en grundvöllur að frekari vexti dagskrár og kynningu vikunnar er þátttaka sem flestra á Vopnafirði. Í lok ágúst verður boðað til fundar til að ræða dagskrá og aðrar hugmyndir.

Þá er öllum sem hafa góðar ábendingar og hugmyndir velkomið að hafa samband við sóknarprest.

Stefán Már Gunnlaugsson, 11/6 2012 kl. 10.47

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS