Hofsprestakall

 

Af hreinsunardegi við Vopnafjarðarkirkju

Þriðjudaginn 12. júní var hreinsunardagur við Vopnafjarðarkirkju og mættu yfir 20 manns. Það voru börn og fullorðnir sem létu hendur standa fram úr ermum og fegruðu umhverfi kirkjunnar með því að hreinsa gróður af hellum og stéttum, sópuðu, týndu rusl og tóku til. Að loknu verki grillaði formaður sóknarnefndar hamborgara og pylsur fyrir alla og boðið var upp á gos og djús. Um verkstjórn og undirbúning sá kirkjuvörðurinn, Ásrún Jörgensdóttir.

Kirkjurnar okkar hér á Vopnafirði eru fögur guðshús, sem setja svip sinn á sveit og þorp og þangað leggja fjölmargir ferðamenn leið sína og eftir hreinsunardaginn getum við nú sem fyrr verið stolt af kirkjunum okkar og umhverfi þeirra.

Stefán Már Gunnlaugsson, 13/6 2012 kl. 11.45

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS