Helgihald
Febrúar
5. feb. Fjölskylduguðsþjónusta í Hofskirkju kl. 11:00
Kirkjukórinn syngur, börn sýna helgileik og lesa ritningarlestur og fermingarbörn verða með bænir. Eftir messuna býður Kvenfélagið Lindin upp á kjötsúpu í Staðarholti. Börn sem verða sex ára á árinu fá bókagjöf frá kirkjunni. Boðið er upp á rútuferð frá Vopnafjarðarkirkju kl. 10:40 og til baka kl. 12:40.
12. feb. Samkirkjulega helgistund í Hvítasunnukirkjunni.
Helgistundin er hluti af dagskrá samkirkjulegrar bænaviku og haldin í samatarfi við Kaþólsku kirkjuna á Austurlandi, Þjóðkirkjuna og Hvítasunnukirkjuna á Vopnafirði.
19. feb. Guðsþjónusta í Kaupvangskaffi kl. 15:00.
Karlakór Vopnafjarðar syngur, leiðtogaefni verða útskrifuð. Sunnudagaskóli verður í Múlastofu, Kaupvangi.
Mars
11. mars. Æskulýðsmessa fyrir alla í Vopnafjarðarkirkju kl. 15:00 og árleg kaffisala æskulýðsfélags Hofsprestakalls - Kýros
Kirkjukórinn, barnakórinn og unglingar syngja, leikrit, helgileikur ofl.
25. mars. Guðsþjónusta og Sunnudagaskóli í Vopnafjarðarkirkju kl. 11:00
Kökubasar 10-12 ára barna og námskeiðið: “Það vex sem að er hlúð”. Starfsfólk
Vopnafjarðarhrepps les ritningarlestur og býður upp á léttan hádegisverð.
Apríl
1. apríl. Fjölskyldusamvera í Vopnafjarðarkirkju kl. 11:00
Pálmasunnudagur og páskaeggjaleit í safnaðarheimilinu fyrir alla fjölskylduna.
6. apríl. Passíusálmalestur í Hofskirkju kl. 13:00-16:00 og pílagrímaganga frá Vopnafjarðarkirkju kl. 9:30
8. apríl. Hátíðarmessa kl. 8:30 í Vopnafjarðarkirkju
Boðið upp á morgunverð í safnaðarheimilinu
Hátíðarmessa kl. 14:00 í Hofskirkju.
Sameiginlegt kirkjukaffi í Staðarholti. Allir mega koma með kökur og brauð.
22. apríl. Gleðimessa kl. 14:00
Messukaffi fermingarbarna og Davíð Þór Jónsson, prédikar
Maí
17. maí. Guðsþjónusta í Vopnafjarðarkirkju kl. 14:00 á degi eldri borgara
Eldri borgarar frá Bakkafirðir, Þórshöfn og Þistilfirði koma í heimsókn og boðið
verður upp á kaffiveitingar í safnaðarheimilinu.
27. maí. Fermingarmessa kl. 14:00 í Vopnafjarðarkirkju
Fermd verða:Albert Jóhannsson, Almar Logi Kristjánsson, Ágúst Máni Jóhannsson, Edda Björk Vatnsdal, Einar Magnús Björnsson, Gabríela Sól Magnúsdóttir, Hemmert Þór Baldursson, Óliver Jóhannsson, Sigurrós Halldórsdóttir og Victoria Rachel Zamora.