Föstudagurinn langi
Föstudaginn langa, 6. apríl, verður pílagrímaganga frá Vopnafjarðarkirkju til Hofskirkju og lesið úr Passíusálmum sr. Hallgríms Péturssonar í Hofskirkju Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 3/4 2012
Föstudaginn langa, 6. apríl, verður pílagrímaganga frá Vopnafjarðarkirkju til Hofskirkju og lesið úr Passíusálmum sr. Hallgríms Péturssonar í Hofskirkju Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 3/4 2012
Sunnudaginn 1. apríl, kl. 11:00 verður fjölskyldusamvera og páskaeggjaleit í Vopnafjarðarkirkju. Öll börn velkomin, líka systkin og foreldrar, afar og ömmur, frændur og frænkur. Komum og eigum saman góða stund með börnunum í kirkjunni við upphaf dymbilviku.
Stefán Már Gunnlaugsson, 29/3 2012
Föstudaginn langa þann 6. apríl næstkomandi verða lesnir Passíusálmar sr. Hallgríms Péturssonar Í Hofskirkju eins og undanfarin ár. Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í lestrinum geta sent tölvupóst á hofsprestakall@kirkjan.is. Á meðan lestrinum stendur er boðið upp á kaffi og brauð í Staðarholti og um morguninn verður pílagrímaganga frá Vopnafjarðarkirkju.
Stefán Már Gunnlaugsson, 28/3 2012
Síðastliðinn sunnudag 25. mars var messa í Vopnafjarðarkirkju og þar tók þátt starfsfólk Vopnafjarðarhrepps. Það las ritningarlestur og var með bænir og Magnús Már Þorvaldsson, starfsmaður Vopnafjarðarhrepps, prédikaði. Á eftir buðu þau upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu. Börn úr 10-12 ára starfinu voru með kökubasar til styrktar þrælabörnum á Indlandi og söfnuðust 43.750.- kr. Loks var sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir með námskeiðið “Það vex sem að er hlúð.” Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 27/3 2012
Sunnudaginn 25. mars kl. 11:00 verður messa í Vopnafjarðarkirkju. Starfsfólk Vopnafjarðarhrepps les ritningarlestur og bænir og býður öllum upp á léttan hádegisverð. Magnús Már Þorvaldsson, starfsmaður Vopnafjarðarhrepps, prédikar. Börn úr 10-12 ára starfinu verða með kökubsar efir messuna til styrktar þrælabörnum á Indlandi. Loks verður námskeiðið “Það vex sem að er hlúð” Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 21/3 2012
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 24. mars kl. 18:00-21:00 og sunnudaginn 25. mars kl. 19:00-22:00.
Stefán Már Gunnlaugsson, 20/3 2012
Um 150 manns voru samankomin í kirkjunni, en messan var undirbúin af unglingunum í æskulýðsfélaginu Kýros á Vopnafirði. Auk kór barna og unglinga, þá söng kirkjukórinn og hljómsveitin Kleóbræður og vinir spiluðu ásamt hljómsveit unglinga. Börn úr 10-12 ára starfinu voru með leikatriði og fermingarbörn lásu ritningarlestra og bænir.
Stefán Már Gunnlaugsson, 11/3 2012
Undanfarin ár hafa unglingarnir í æskulýðsfélagi Hofsprestkalls – Kýros - á Vopnafirði vakið athygli fyrir frumkvæði og dugnað. Þar stendur hæst Vinavikan á haustin og nú ætla unglingarnir að standa fyrir æskulýðsmessu og árlegri kaffisölu næstkomandi sunnudag, 11. mars, kl. 15:00. Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 9/3 2012
Æskulýðsfélag Hofsprestkalls verður með árlega kaffisölu eftir æskulýðsmessu á sunnudaginn 11. mars, kl. 15:00. Með kaffisölunni er æskulýðsfélagið að safna fyrir þrælabörn á Indlandi. Meðfylgjandi auglýsingu gerði æskulýðsfélagið að því tilefni. Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 8/3 2012
Í tilefni af æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar sem var sunnudaginn síðastliðinn sunnudag verður æskulýðsmessa fyrir alla í Vopnafjarðarkirkju kl. 15:00, sunnudaginn 11. mars. Árleg kaffisala æskulýðsfélagsins verður í safnaðarheimilinu eftir messuna. Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 7/3 2012
Viðtalstímar sóknarprests í safnaðarheimili
Þriðju- og miðvikudaga kl. 10:00-14:00
Facebook
Hofsprestakall er líka á Facebook.
Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi ![]()