Eins og undanfarin ár veitir Hjálparstarf kirkjunnar jólaaðstoð þeim sem á því þurfa að halda yfir jólin. Hægt er að sækja um aðstoð til sóknarprests, en síðasti dagur til að sækja um er 14. desember.
Stefán Már Gunnlaugsson, 1/12 2006
Sunnudagaskólinn í Vopnafjarðarkirkju fellur niður þann 26. nóvember næstkomandi. Sjáumst hress og kát í Sunnudagaskólanum 1. sunnudag í aðventu, þann 3. desember.
Stefán Már Gunnlaugsson, 22/11 2006
Vegna þess að ekki er flogið frá Reykjavík er kvikmyndasýningunni og dagskránni sem vera átti í kvöld 19. nóvember, kl. 20:00, frestað um óákveðin tíma.
Stefán Már Gunnlaugsson, 19/11 2006
Sunnudaginn 19. nóvember kl. 20:00 verður kvikmyndasýning í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Sýnd verður kvikmyndin “The Da Vinci Code” með Tom Hanks í aðalhlutverki.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 17/11 2006
Sunnudaginn 19. nóvember kl. 11:00 verður fjölskyldumessa í Vopnafjarðarkirkju.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 17/11 2006
Til stendur að æskulýðsfélag Hofsprestakalls fari í ferðlag í Vestmannsvatn og liður í fjáröflun fyrir ferðinni var að taka til í kirkjunni. Hér fylgja nokkrar myndir sem voru teknar við þetta tækifæri.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 13/11 2006
Á mánudögum kl. 16:30-17:45 hittist fólk með geðraskanir og aðstandendur þeirra í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 10/11 2006
Síðasta mánudag gengu fermingarbörn í hús og söfnuðu framlögum til hjálparstarfs. Þátttaka og áhugi barnanna var mjög góður og var þeim vel tekið. Fermingarbörnin söfnuðu alls 67.228.- kr.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 8/11 2006
Mánudaginn 6. nóvember munu fermingarbörn ganga í hús og safna framlögum til hjálparstarfs. Söfnunin er samstarfsverkefni sókna kirkjunnar og Hjálparstarfs kirkjunnar.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 4/11 2006
Á Allra heilagra messu verða verða guðsþjónustur í Vopnafjarðarkirkju kl. 11:00 og Hofskirkju kl. 14:00. Látinna verður minnst. Kirkjugestum boðið að tendra ljós í minningu látinna ástvina.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 2/11 2006