Sunndaginn 19. febrúar var kaffihúsamessa á konudaginn í Kaupvangskaffi. Fjölmenni var við messuna og nutu kaffiveitinga á Ágústu og góðrar stundar, en við messuna söng Karlakór Vopnafjarðar undir stjórn Stephen Yates. Sunnudagaskóli var á sama tíma í Múlastofu og var mikið fjör og gaman og heyrðist stundum vel niður. Við lok messunnar gaf Landsbankinn á Vopnafirði öllum konum rós í tilefni dagsins. Ari G. Hallgrímsson tók myndir við messuna og má þær finna á heimasíðu hans.
Stefán Már Gunnlaugsson, 22/2 2012
Mánudaginn 20. febrúar var dregið í Vinahappdrætti æskulýðsfélags Hofsprestakalls - Kýros. Neðangreint er vinningaskráin og nálgast má vinningana á skrifstofu sóknarprests.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 20/2 2012
Á konudaginn, nk. sunnudag 18. feb., kl. 15:00 verður kaffihúsamessa í Kaupvangskaffi. Sunnudagaskóli verður á sama tíma í Múlastofu. Léttir sálmar og söngvar og umgjörðin með kaffihúsabrag.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 17/2 2012
Safnaðarblað Hofsprestakalls er komið út og hefur verið dreift í öll hús, en það má einnig nálgast hér: Safnaðarblað Hofsprestakalls. Meðal efnis er sagt frá helgihaldinu fram á sumar, sjálfstyrkinganámskeiði fyrir konur “Konur eru konum bestar”. safnaðarheimili við Hofskirkju, starfi æskulýðsfélagsins og 10-12 ára barna ofl.
Stefán Már Gunnlaugsson, 17/2 2012
Unglingarnir í Æskulýðsfélagi Hofsprestakalls - Kýros - eru að fara á mót á Hrafnagil í Eyjafirði helgina 24.-26. feb. Í fjáröflunarskyni fyrir ferðasjóð félagsins standa þau fyrir Vinahappdrætti. Dregið verður úr seldum miðum 20. feb.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 15/2 2012
Sunnudaginn 12. febrúar, kl. 14:00 verður samkirkjuleg helgistund í Hvítasunnukirkjunni. Helgistundin er í umsjá fólks úr Hvítasunnukirkjunni og Þjóðkirkjunni í tilefni af samkirkjulegri bænaviku. Boðið verður upp á kaffi eftir stundina.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 8/2 2012
Sunnudaginn 5. febrúar, kl. 11:00 verður fjölskyldumessa fyrir alla í Hofskirkju. Eftir guðsþjónustuna býður Kvenfélagið Lindin kirkjugestum upp á kjötsúpu í Staðarholti. Rútuferð verður frá Vopnafjarðarkirkju.
Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 1/2 2012
Sunnudaginn 29. janúar, kl. 15:00 stendur æskulýðsfélag Hofsprestakalls - Kýros - fyrir kvikmyndasýningu í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Sýnd verður myndin “Animals United”. Miðaverð er 200.- kr. Lesa áfram …
Stefán Már Gunnlaugsson, 26/1 2012
Gamlárskvöld
Aftansöngur í Vopnafjarðarkirkju kl. 17:00.
Nýjársdagur
Hátíðarguðsþjónusta í Hofskirkju kl. 15:00. Ágústa Þorkelsdóttir, prédikar.
Verum öll hjartanlega velkomin.
Stefán Már Gunnlaugsson, 29/12 2011
Aðfangadagur
Aftansöngur í Vopnafjarðarkirkju kl. 17:00.
Nýr altarisdúkur verður tekin í notkun sem söfnuðinum hefur verið gefinn.
Jóladagur
Hátíðarguðsþjónusta í Hofskirkju kl. 14:00
Annar jóladagur
Fjölskyldumessa í Vopnafjarðarkirkju kl. 14:00
Barn borið til skírnar. Börn sýna helgileik og fermingarbörn lesa bænir.
Þriðji jóladagur, þriðjudaginn, 27. desember
Helgistund í Sundabúð kl. 17:00
Stefán Már Gunnlaugsson, 20/12 2011