Hofsprestakall

 

Safnaðarstarf

Kórastarf

Kór Vopnafjarðar- og Hofskirkju eru með æfingar alla miðvikudaga kl. 20:00. Æfingar eru ýmist í Hofskirkju eða Vopnafjarðarkirkju.

Barnastarf

Í barnastarfinu er boðið upp á fjölbreytt starf fyrir börn, þar sem lögð er áhersla á uppbyggjandi og skemmtilegar samverur. Margt er gert svo sem farið í leiki, Biblíufræðsla, ferðalög, föndrað og margt fleira. Allir krakkar á aldrinum 10-12 ára eru velkomnir.

Starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára er á þriðjudögum kl. 14:00-15:00.

Unglingastarf

Í unglingastarfinu er boðið upp á fjölbreytt, skemmtilegt og uppbyggjandi starf fyrir unglinga á aldrinum 13-15 ára. M.a.er farið í leiki, ferðalög og margt fleira. Allir krakkar eru velkomnir.

Starf fyrir 13-15 ára er á þriðjudagskvöldum kl. 20:00-21:30.

Sunnudagskóli

Sunnudagaskóli fyrir alla fjölskylduna. Uppbyggjandi og góðar stundir fyrir alla fjölskylduna, foreldra, afa og ömmur, frændur og frænkur. Börnin fá límmiða og bækur, sungin lög, hlustað á sögur og góðir gestir koma í heimsókn.

Sunnudagaskóli Hofsprestakalls er á sama tíma og guðsþjónustur og auglýstur sérstaklega.

Fermingarstarf

Ferming þýðir staðfesting. Í fermingunni staðfestir barnið skuldbindingu foreldra og guðfeðgina í skírnarathöfninni. Fermingarbarnið fer með trúarjátninguna, vinnur fermingarheit og þiggur fyrirbæn og blessun. Fyrir ferminguna þarf fermingarbarnið að sækja fermingarfræðslu, taka þátt í helgihaldi safnaðarins og safnaðarstarfi á meðan undirbúningstímanum stendur. Undanfarin ár hefur það tíðkast að 12 ára börnum er boðið að takþátt í fermingarfræðslunni um haustið með fermingarbörnum næsta vors.

Fermingarfræðslan er á miðvikudögum kl. 14:45 í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju.

Mömmumorgnar

Samverustundir fyrir mæður og börn í samstarfi við heilsugæsluna á Vopnafirði. Kaffi, létt spjall og fræðsla.

Mömmumorgnarnir eru á þriðjudögum kl. 10:00-12:00.

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS