Hofsprestakall

 

Um Hofsprestakall

Talið er að að kirkja hafi verið byggð á Hofi fljótlega eftir kristnitöku og prestar verið goðorðsmenn meðan sú skipan hélst í landinu. Hof var höfuðstaður og þar verið löngum stórbýli. Margir merkir prestar hafa setið staðinn bæði fyrr og síðar. Árið 1899 var prestakallinu skipt í tvær sóknir, Hofs- og Vopanfjarðarsókn.

Hofssókn

Hofssókn nær yfir sveitina; Hofsár-, Vesturár- og Selárdal, sem og ströndina. Kirkjan er byggð á árunum 1900-1901 og var vígð 19. desember. Hún er hið prýðilegasta guðshús, sterk og vöndu að allri gerð. Altaristaflan er frá 1860, tveir skírnarfontar eru í kirkjunni, annar útskorinn eftir Halldór í Miðhúsum og hinn danskur. Sálmataflan útskorinn af Ríkharði Jónssyni. Kirkjan hefur nýlega öll verið gerð upp að innan, trévirki yfirfarið, raflagnir og máluð í upprunalegum litum.

Meðal merkra muna eru gamlir höklar og altarisklæði og tvær gamlar söngtöflur. Gólfdregill eftir miðju kirkugólfi var ofinn af Kvennfélagskonum í sókninni og gefinn í tilefni af 50 ára afmæli kirkjunnar. Árið 1933 brann bærinn á Hofi og eru því nánast engar heimildir til um Hofskirkju fyrir þann tíma.

Vopnafjarðarsókn

Vopnafjarðarsókn nær yfir kauptúnið á Kolbeinstanga. Fljótlega eftir að Vopnafjarðarsókn var stofnuð var farið að tala fyrir alvöru um að byggja kirkju á “Tanganum”, en hún var byggð á árunum 1902 til 1903. Nokkrar breytingar hafa orðið í skipan sóknarinnar; síðast upp úr 1970 þegar sveitin öll, að undanskilinni Leiðarhöfn, var lögð undir Hofssókn.

Kirkjan er hið prýðilegasta guðshús. Fyrir 100 ára afmæli kirkjunnar var hún gerð upp að utan og utan, einnig var byggt við kirkjuna safnaðarheimili. Margt merkra muna er í kirkjunni m.a. altaristafla eftir Jóhannes Kjarval, útskorinn skírnarfontur og pípuorgel.

Kirkjugarðar

Tveir kirkjugarðar eru í Hofsprestakalli, sem tilheyra hvorri kirkju. Kirkjugarður Vopnafjarðarkirkju er norðan við þorpið, en kirkjugarður Hofskirkju er við kirkjuna.

Organistar við Vopnafjarðarkirkju frá 1908-69

  • 1908-12 Kristján N. Wiium
  • 1913-18 Guðni J. Kristjánsson
  • 1919-20 Sigurbjörg Albertsdóttir
  • 1921-23 Emilía Guðjohnsen
  • 1924-27 Sigurbjörg Albertsdóttir
  • 1928-36 Þórdís Jensen
  • 1937 Björn Jóhannsson
  • 1938-40 Ingi Lárusson
  • 1941-69 Sigurbjörg Albertsdóttir

Heimild: Fundargerðarbók Vopnafjarðarkirkju

     

    Hofsprestakall, Vopnafjarðarkirkju, Kolbeinsgötu 8, 690 Vopnafirði. Sími 473 1580 · Kerfi RSS