Hóladómkirkja

 

Dagskrá sunnudagsins

Sunnudagurinn var allur hinn hátíðlegasti.  Fánar dregnir að húni fyrir fyrstu athöfn dagsins sem var morgunsöngur kl. 9.   Þá var kominn á altarið forkunnarfagur nýr altarisdúkur, saumaður og gefinn kirkjunni af Þórveigu Sigurðardóttur frá Sleitustöðum.  Hann var síðan helgaður í hátíðarmessunni kl. 14.  Kemur hann í stað dúks sem móðir hennar heklaði og gaf kirkjunni fyrir vígslu turnsins árið 1950.  Sá var orðinn nokkuð slitinn enda í stöðugri notkun í 59 ár.

Kl. 10:30 var samkoma í Auðunarstofu.  Þar fór fram afhending hins nýja hátíðaskrúða sem hjónin Leifur Breiðfjörð og Sigríður Jóhannsdóttir hönnuðu og unnu.   Gerði Sigríður grein fyrir tilurð hans, vinnunni við hann og táknmáli útsaumsins.

Sr. Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum flutti fróðlegt og skemmtilegt erindi í tilefni af því að 50 ár eru frá biskupsvígslu föður hans á Hólum.  Kom hann víða við í sögu  biskupsstólsins á Hólum, m.a. aðdraganda þess að embætti vígslubiskupa voru stofnuð fyrir réttum 100 árum síðan.  Einnig fléttaði hann inn upplýsingar um skrúða og búnað Hóladómkirkju til forna og fram til þessa dags.

Kirkjunnar þjónar gengu fylktu liði til kirkju.  Jóhanna Erla Birgisdóttir í fararbroddi með helgigöngukrossinn sem Leifur Breiðfjörð og Sigríður gerðu fyrir kirkjuna 2005.  Myndir á nýja skrúðanum taka mið af þeirri hönnun.  Hér sjást þau hjón ásamt fjármálaráðherra sem var viðstaddur alla atburði sunnudagsins.  Hefur ræða hans á hátíðarsamkomunni vakið athygli fjölmiðla eins og sjá má hér.

Mjög góður rómur var gerður að ræðunni í kirkjunni, sem og að ljóðaflutningi Vilborgar Dagbjartsdóttur og söng Kristjönu Arngrímsdóttur.  Mikill fjöldi tók þátt í hátíðinni.

Margrét Sigtryggsdóttir, 17/8 2009 kl. 19.00

     

    Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS