Hóladómkirkja

 

Laugardagur - útivistardagur

Margir fóru snemma á fætur til að fara í pílagrímsgöngurnar frá Flugumýri og Svarfaðardal.

Hér sjást nokkrir göngumenn á síðustu metrunum heim að Hólum eftir dags göngu yfir fjöll og firnindi.  Sr. Guðrún Eggertsdóttir sjúkrahússprestur leiddi gönguna yfir Heljardalsheiði eins og oft áður.

Einnig var farin styttri ganga að altari Guðmundar góða í Gvendarskál.

Þessi hópur lagði af stað frá Hólaskóla með vígslubiskup í fararbroddi.  Aðrir voru þegar komir upp fjallið og biðu þar eftir helgistundinni, og enn aðrir hlupu bæði upp og niður fjallið, og voru snöggir.  Ungmennafélagið stóð fyrir Byrðuhlaupi þennan dag og veitti verðlaun þeim fljótasta.  Sá heitir Guðmundur Elí Jóhannsson nemandi í 4. bekk, Grunnskólanum á Hólum.

Hér má sjá Hjalta Þórðarson styðjast við staf sinn fyrir framan kirkjuna að lokinni ferð um Biskupaleið.  Þórarinn á Frostastöðum sem leitt hefur þessa göngu margoft stendur keikur og blæs ekki úr nös!

Sumir komu langt að til að fara í fjallgöngu og voru fegnir að dreypa á fersku vatni úr Gvendarbrunni. Málfríður og Jóhannes sem skenktu öllum göngumönnum sem komu til kvöldsöngs í kirkjunni sjást í baksýn.

Margrét Sigtryggsdóttir, 17/8 2009 kl. 16.09

     

    Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS