Hóladómkirkja

 

Skagfirskir listamenn

S.l. sunnudag 23. ágúst áttum við enn þess kost að njóta orgelleiks Jóns Bjarnasonar, bæði í messu og á tónleikum.  Þar var hann í fylgd með sópransöngkonunni Helgu Rós Indriðadóttur.  Lagavalið helgaðist af því að vera flutt í kirkju enda eru margar helstu perlur tónlistarinnar af trúarlegum rótum runnar.  Af tónskáldum má nefna Þorkel Sigurbjörnsson, Árna Thorsteinsson og Sigvalda Kaldalóns.  Einnig Händel, Haydn og Mozart.

Margrét Sigtryggsdóttir, 26/8 2009 kl. 10.49

     

    Hólum í Hjaltadal, 551 Sauðárkróki. Sími 453 6300 , fax 453 6301 · Kerfi RSS